Matvælastofnun
14.5.2012  Fréttir
Matvælastofnun hefur tekist á við óvenju mörg stór dýravelferðarmál í vetur. Sauðfjárbú hafa verið þar í meirihluta. Í fimm málum hefur þurft að farga sauðfé vegna vanfóðrunar, samtals um 170-180 kindum, og eru þá ótalin önnur mál vegna annarskonar athugasemda.
10.5.2012  Fréttir
Starfsskýrsla MAST 2011 hefur verið gefin út á rafrænu formi á vef Matvælastofnunar. Starfsskýrslan er upplýsingasafn um eftirlit stofnunarinnar og eftirlitsniðurstöður á liðnu ári. Hana má nálgast undir Útgáfu - Skýrslur eða með því að smella hér.
8.5.2012  Fréttir
Nýlega fannst fé sem flutt hafði verið úr Rangárvallahólfi yfir í Hreppa-, Skeiða- og Flóahólf ásamt fleira fé sem flutt hafði verið milli bæja innan síðarnefnds hólfs. Fénu hefur verið fargað án greiðslu bóta en bætur eru ekki greiddar vegna förgunar þegar lög eða reglugerðir um dýrasjúkdóma eru brotin. Málið verður jafnframt kært til lögreglu.
7.5.2012  Fréttir
Matvælastofnun boðar til samráðsþings n.k. föstudag kl. 13-16 á Hilton Reykjavík Nordica. Tilgangur samráðsþingsins er að styrkja samskipti Matvælastofnunar við eftirlitsþega og aðra viðskiptavini. Þemað að þessu sinni verður áhættugreining og eftirlit og munu sjónarmið stofnunarinnar og ýmissa hagsmunahópa koma fram.
7.5.2012  Fréttir
Matvælastofnun hefur gert þjónustusamning við Dýrin mín stór og smá ehf., í eigu Ingunnar Reynisdóttur dýralækni, um að taka að sér almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu á þjónustusvæði 4, (Húnaþing vestra, Blönduósbær, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagaströnd og Húnavatnshreppur).
Eldri fréttir

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað