22.7.2010
Hjalti Andrason
NÝTT RIÐUTILVIK Í ÁRNESSÝSLU

| Greinst hefur riða í
einni kind á bænum Hurðarbaki í Flóahreppi. Grunur vaknaði vegna
sjúkdómseinkenna í kindinni og voru sýni send á Tilraunastöðina að
Keldum þar sem greining riðu var staðfest. |

| | Greinst hefur riða í
einni kind á bænum Hurðarbaki í Flóahreppi. Grunur vaknaði vegna
sjúkdómseinkenna í kindinni og voru sýni send á Tilraunastöðina að
Keldum þar sem greining riðu var staðfest.
Ráðherra hefur verið upplýstur um málið og vinnur Matvælastofnun nú að undirbúningi niðurskurðar
og samningagerðar. Sömuleiðis er unnið að gagnasöfnun vegna
faraldsfræðirannsóknar.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Matvælastofnun í síma 530 4800. |
Ítarefni
Upplýsingasíða um riðuveiki