Matvælastofnun
Aðalskrifstofa Matvælastofnunar er á Selfossi að Austurvegi 64 og er móttakan opin alla virka daga frá kl. 9:00 - 16:00.
MAST hóf störf 1. janúar 2008 þegar Landbúnaðarstofnun,
matvælasvið Umhverfisstofnunar og matvælasvið Fiskistofu voru sameinuð undir
einum hatti. Stofnunin starfar undir yfirstjórn sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytis, sem sett hefur reglugerð nr. 1/2008 um skipulag og starfsemi MAST. Aðalskrifstofa er á Selfossi, en stofnunin rekur einnig umdæmiskrifstofur víðs vegar um landið
og skrifstofu inn- og útflutningsmála í Reykjavík, auk landamærastöðva vegna
innflutnings sjávarafurða frá ríkjum utan EES.
Hlutverk
Matvælastofnun sinnir stjórnsýslu, eftirliti, fræðslu og þjónustu við sjávarútveg, landbúnað, fyrirtæki og neytendur í þeim tilgangi að stuðla að heilbrigði og velferð dýra, heilbrigði plantna og öryggi, heilnæmi og gæðum matvæla.
Verkefni
MAST vinnur að matvælalöggjöf í samvinnu við ráðuneytið og á
þetta við um löggjöf í allri fæðukeðjunni, þ.e. frá heilbrigði og velferð dýra,
þ.m.t. sjávarafurða, plöntuheilbrigði, fóðri, vinnslu og dreifingu og þar til
matur er borinn á borð neytenda. Stofnunin fer með eftirlit með frumframleiðslu
búfjárafurða, sláturhúsum og kjötvinnslum sem þeim tengjast, eftirlit með
sjávarafurðum og allt inn- og útflutningseftirlit með matvælum. MAST fer einnig
með yfirumsjón með matvælaeftirliti á vegum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
og eftirlit með störfum sjálfstætt starfandi skoðunarstofa í sjávarútvegi og
störfum dýralækna sem veita almenna dýralæknaþjónustu. Einnig fer stofnunin með
fóðureftirlit og önnur verkefni eins og sjá má á eftirfarandi lista yfir helstu verkefni MAST:
- Matvælalöggjöf og matvælaeftirlit
- Neytendavernd og fræðslumál
- Heilbrigði og velferð dýra
- Plöntuheilbrigði og sáðvara
- Fóður og áburður
- Sóttvarnir og viðbragðsáætlanir
- Kjötmat
- Inn- og útflutningseftirlit, rekstur landamærastöðva
- Yfirumsjón og eftirlit: Heilbrigðiseftirlit, skoðunarstofur, dýralæknaþjónusta
- Stjórnsýsluverkefni: Lögfræði, alþjóðamál, gæðastýring, beingreiðslur, búfjáreftirlit
Gildi
Matvælastofnun hefur sett sér eftirfarandi gildi sem starfsmönnum stofnunarinnar ber að hafa að leiðarljósi í störfum sínum:
- Árvekni: Árvekni er forsenda þess að stofnunin nái að rækja hlutverk sitt á tímum örra
breytinga. Mæta þarf framþróun og nýjum viðfangsefnum með fyrirhyggju,
frumkvæði og lausnum sem svara kalli tímans.
- Framsækni: Stofnunin skal hafa forystu á sínu starfssviði og vinna að hagræðingu og
einföldun á eftirliti og stjórnsýslu. Árangursstjórnun og gæðastjórnun skal
hafa að leiðarljósi og leita bestu úrlausnar mála.
- Traust: Afgreiðsla erinda á að vera fagleg og þannig að viðskiptavinir beri traust til starfsseminnar. Vinnubrögð skulu vera trúverðug, gæta þarf hlutleysis við ákvörðunartöku og sýna ber viðskiptavinum og samstarfsfólki virðingu.
- Gegnsæi: Stjórnsýslu- og upplýsingalög skal hafa í heiðri og rökstyðja þarf ákvarðanir vel. Nýta ber upplýsingatækni til að leiðbeina viðskiptavinum og tryggja þeim aðgang að nauðsynlegum gögnum og upplýsingum.
Framtíðarsýn
Matvælastofnun mun standa vörð um þá auðlind sem felst í heilbrigði
plantna og heilbrigði og velferð dýra í ómenguðu umhverfi. Stofnunin
mun jafnframt vinna að gæðum og heilnæmi fisk- og landbúnaðarafurða,
matvælaöryggi og neytendavernd í síbreytilegu markaðsumhverfi sem
leiðir af nýsköpun í matvælaframleiðslu og auknum alþjóðaviðskiptum.
Stjórnskipulag og störf
Í innra skipulagi MAST er verkefnum skipt milli tveggja
megin fagsviða, sem eru annars vegar Heilbrigði
og velferð dýra og hins vegar Matvælaöryggi
og neytendamál. Síðan eru stoðsvið fyrir Áhættumat og gæðastjórnun, Fræðslu-
og upplýsingamál, Stjórnsýslu og
lögfræði og Rekstur og mannauð.
Starfsmenn eru nálægt 80 en ársverk heldur fleiri vegna tímabundinna ráðninga
og þar sem stofnunin er einnig með verksamninga við aðra aðila. Afla má frekari upplýsinga
eða koma með fyrirspurnir á netfangið mast@mast.is.
Starfsfólk MAST hefur menntun á ýmsum sérsviðum. Við
umdæmisskrifstofur starfa héraðsdýralæknar og eftirlitsdýralæknar og á
aðalskrifstofu starfa sérgreinadýralæknar að verkefnum sem tengjast heilbrigði
og velferð dýra. Matvælafræðingar og næringarfræðingar starfa við matvælaöryggi
og neytendamál, kjötmat og einnig stjórnsýslu í samvinnu við lögfræðinga
stofnunarinnar. Þá hefur MAST líffræðinga með sérmenntun á sviði
plöntuheilbrigðis, sáðvara, fóðurmála og áburðareftirlits. Á komandi árum má
síðan gera ráð fyrir að stofnunin hafi aukna þörf fyrir sérmenntað starfsfólk á
framangreindum sviðum því verkefnum MAST fjölgar í takt við auknar kröfur sem
gerðar eru á sviði dýra- og plöntuheilbrigðis og sívaxandi áherslu sem lögð er
á matvælaöryggi og neytendavernd.
Frá heilbrigði til hollustu
Vígorð Matvælastofnunar er “Frá heilbrigði til hollustu”. Vísar það til þess að stofnunin fer
með löggjöf og eftirlit sem varðar heilbrigði plantna, heilbrigði og velferð
dýra og síðan matvælaöryggi, ýmist með eigin starfsemi eða með eftirliti með störfum skoðunarstofa og sjálfstætt starfandi dýralækna, eða
samstarfi og samvinnu við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga.
Heilbrigðiseftirlitið fer með víðtækt eftirlit með framleiðslu og dreifingu
matvæla undir yfirumsjón MAST. Sjálfstætt starfandi skoðunarstofur í
sjávarútvegi eru nú tvær, en stöðugildi eftirlitsmanna þar eru ekki mörg.
Heilbrigðiseftirlitssvæðin eru hins vegar 10 um allt land og þar eru samtals um
20 ársverk í matvælaeftirliti.
Skipurit: