Bændur sem blanda saman ýmsum tegundum gróffóðurs án þess að bæta í blönduna
aukefnum eða forblöndum aukefna eru ekki háðir fóðureftirliti Matvælastofnunar.
Bændur sem nota aukefni eða forblöndur aukefna í fóðurblöndur þurfa að skrá
starfsemi sína hjá Matvælastofnun og fá sérstaka heimild (viðurkenningu) til að nota aukefni eða forblöndur. Þeir skulu gera áætlun um innra eftirlit sem byggir á GÁMES (greiningu áhættuþátta og mikilvægra eftirlitsstaða).